VÍS: Tilnefningarnefnd VÍS óskar eftir framboðum til stjórnar
- Oops!Something went wrong.Please try again later.
Tilnefningarnefnd VÍS auglýsir eftir framboðum eða tilnefningum til stjórnar VÍS vegna aðalfundar félagsins sem haldinn verður fimmtudaginn 19. mars 2020.
Frestur til að skila inn framboðum og tilnefningum sem hljóta eiga umfjöllun tilnefningarnefndar er til föstudagsins 31. janúar 2020. Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðublaði sem unnt er að nálgast á vef félagsins á slóðinni https://www.vis.is/media/174900/frambod-til-stjornarsetu.pdf og skal skila á netfangið: tilnefningarnefnd@vis.is.
Almennur framboðsfrestur til stjórnar samkvæmt samþykktum VÍS er fimm dögum fyrir aðalfund. Starfsemi tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimild frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar allt fram að því tímamarki, en um þau framboð verður ekki fjallað í tillögu tilnefningarnefndar.
Rökstudd tillaga tilnefningarnefndar um bestu samsetningu stjórnar verður birt samhliða aðalfundarboði.